Um er að ræða 11 stigahús sem eru randbyggð á reit sem afmarkast af Haukahlíð, Smyrilshlíð, Fálkahlíð og Hlíðarfæti. Húsin eru þrjár til fimm hæðir með bílakjallara á tveimur hæðum og verslunar og þjónusturými á jarðhæð við eina af götunum fjórum.
Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og gerð, allt frá 48 fermetra tveggja herbergja íbúðum og upp í 122,6 fermetra fimm herbergja íbúðir á fyrstu fjórum hæðum bygginganna. Því til viðbótar eru 14 glæsilegar þakíbúðir í mismunandi stærðum, allt upp í 350 fermetra íbúðir með stórkostlegu útsýni og stórum þaksvölum.
Öll samskipti eru vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér