Reir Verk ehf. er framkvæmdaraðili að þessum glæsilegu húsum við Mýrargötu fyrir Grandann ehf. Verkkaupi hefur nú þegar fengið tvö hús af fjórum afhent, Mýrargötu 33 og Mýrargötu 39. Á meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá fulltrúa verkkaupa Gísla Reynisson og Hermann Hauk Hauksson verkstjóra hjá Reir Verk ehf. við afhendingu. Við óskum Grandanum til hamingju með verkefnið en seinni tvö húsin af fjórum afhendast á næstu mánuðum.